| |
|
laugardagurinn => 27. júní 2009
17:00
fór um daginn til munchen í eina viku til að setja upp eina afritunarstöð..
gisti a þrælfínu hóteli rétt hjá miðbænum og fór út að borða á polyneskum veitingarstað.. mjög sérstakur staður.
|
|
sunnudagurinn => 22. mars 2009
22:30
skrapp til englands núna fyrir nokkrum vikum, 2ja vikna námskeið hjá sun microsystems.. lærði að setja upp, viðhalda og stjórna stærstu afritunarstöðinni þeirra. skoðaði london þar á milli, fór í eina af þessum tveggja hæða rútum með engum topp á.. svo allir fengu kvef daginn eftir enda frekar kalt í london þann daginn, síðustu helgi fórum við julia svo til ítalíu í 5 daga á snjóbretti í dolomit fjöllunum, reyni að setja nokkrar myndir inná myndasíðuna eftir nokkra daga. allt gott að frétta úr vinnunni, kláraði að "þýða" google calculator með öðrum íslending í vinnunni.. svo núna getið þið t.d. googlað 100 mílur í kílómetrum á google.is :)
|
|
miðvikudagurinn => 5. nóvember 2008
20:07
skrapp til ameríku um daginn í 2 vikur á þrælgott ljósleiðara námskeið hjá google í höfuðstöðvunum í mountain view. í október fór ég á annað vikulangt námskeið í dublin og strax eftir það fór ég í 2ja vikna frí til egyptalands sem ég kom heim úr á síðasta sunnudag.. það eru komnar inn myndir (sjá hér til hægri með því að smella á "Myndir?", var mest legið á ströndinni en við julia fórum tvisvar að kafa í rauða sjónum, prófuðum byrjendanámskeið í golfi og skruppum í safari í eyðimörkinni þar sem við fengum að fara á bak kameldýrs og fara um eyðimörkina á fjórhjóli.. en nú er stórt verkefni að byrja í vinnunni svo það verður lítið um ferðalög aftur fyrir en eftir jól :)
|
|
þriðjudagurinn => 12. ágúst 2008
21:02
skrapp til íslands um daginn í 2 vikur, var á landsmóti skáta og fór með nokkra skáta þar í tvö 24 tíma hike (sjá myndir undir "Myndir?" hér til hægri), kom svo heim til frankfurt fyrir uþb viku. nú er nóg að gera í vinnunni að venju.. er að fara í tvær vikur til san francisco á netnámskeið í höfuðstöðvunum hjá google og svo stutt stopp í tvo daga í atlanta, eftir það verð ég í dublin í viku í október.. allt að gerast :)
|
|
sunnudagurinn => 6. júlí 2008
11:46
ég hljóp í einu stærsta hlaupi heims um daginn, 73.719 þáttakendur hérna í frankfurt, vegna fjöldans þurftum við að bíða í 30 mín eftir að komast í gegnum byrjunarhliðið og gátum þá loksins byrjað að hlaupa þessa 5.6km sem hlaupið var.
|
|
mánudagurinn => 5. mai 2008
19:29
við julia skruppum til austurríkis um helgina á snjóbretti, síðasta helgin sem skíðasvæðið var opið, keyrðum þangað á fimmtudag og eyddum 3 dögum á skíðasvæðinu. elton john kom á laugardeginum og var með smá tónleika. ég var að prófa snjóbretti í annað skipti og þykist orðinn nokkuð góður eftir 3 daga, a.m.k. hættur að detta í brekkunum :) það er hægt að sjá nokkrar myndir úr ferðinni með því að smella á "Myndir?" hérna hægra meginn
|
|
laugardagurinn => 8. mars 2008
21:53
jæja, nú er ég búinn að búa hérna í frankfurt í um það bil 6 mánuði.. lítið að frétta svosem, nóg að gera í google... fór á cebit með vinnunni á fimmtudaginn síðasta, frekar flott sýning í hannover, allskonar nýjungar sem var verið að sýna í tölvubrasanum.
|
| Eldri Atburðir |
|
|
|